top of page

Eiríkur Blóðöx

Hann var uppáhalds sonur Haralds. Þórir hersir fóstrar hann. Eiríkur dó 954 en hann var konungur Noregs á árunum 933 til um ca 935. Hann var sonur Haraldar hárfagra og var einnig sá eini af fjölmörgum sonum Haralds sem átti tiginborna móður. Mögulega var það ástæðan til þess að hann var gerður að einskonar yfirkonungi en sumir bræður hans urðu fylkiskonungar og voru undir hann settir. Ekki heppnaðist það fyrirkomulag þó vel og samkvæmt því sem segir í Heimskringlu drap Eiríkur alls fimm bræður sína.


Hann þótti óvæginn og var illa liðinn og einnig drottning hans hún Gunnhildur kóngamóðir, sem kölluð er Össurardóttir í Heimskringlu en hefur líklega verið dóttir hans Gorms gamla Danakonungs.


Fáeinum árum eftir að Eiríkur tók við ríkjum kom hálfbróðir hans, Hákon Aðalsteinsfóstri, til Noregs en hann hafði alist upp hjá Aðalsteini Englandskonungi. 


Eiríkur hraktist þá úr landi. Hann varð síðar konungur yfir Norðymbralandi í Englandi og sat í Jórvík, en Gunnhildur var mest í Danmörku með fjórum sonum þeirra, sem gerðu hvað eftir annað út herleiðangra og reyndu að ná ríkinu af Hákoni.


Einn þeirra, hann Haraldur gráfeldur, varð Noregskonungur eftir lát Hákonar. Eiríkur var seinasti sjálfstæði konungurinn í Jórvík og ríkti 947-948 og svo 952-954.

© 2023 by Name of Site. Proudly created with Wix.com

  • Facebook App Icon
  • Twitter App Icon
  • Google+ App Icon
bottom of page