top of page
Egils-Saga

Þorsteinn Egilsson
Þorsteinn var yngstur í hópi barna Egils og Ásgerðar. Móðir hans hélt mikið uppá hann en þeim Agli kom ekki vel saman. Þorsteinn var manna fríðastur, ljóshærður og ljós yfirlitum. Hann var vitur maður, kyrrlátur, hógvær og stilltur.
Þorsteinn tók við búi að Borg eftir að móðir hans lést og faðir hans flutti til Þórdísar að Mosfelli.
Þorsteinn kemur fyrir í mörgum Íslendingasögum. Hann var faðir Helgu hinnar fögru, sem Gunnlaugs saga ormstungu fjallar um, og hann var góðir vinur systursonar síns, Kjartans Ólafssonar, sem Laxdæla fjallar um.
bottom of page